Heimurinn er sífellt að breytast. Ný tækni leysir af gamla. Ný störf verða til og önnur hverfa. Þau sem eru að ljúka starfsævinni voru einu sinni að hefja hana. Allt í einu er framtíðin bara komin.
"Finna jafnvægið, spara og lifa lífinu"
Þau sem eru að ljúka starfsævinni voru einu sinni að hefja hana. Margt hefur breyst en margt er líka eins.
- Öll myndbönd
- Lífið tekur stöðugum breytingum
"Finna jafnvægið, spara og lifa lífinu"
Þau sem eru að ljúka starfsævinni voru einu sinni að hefja hana. Margt hefur breyst en margt er líka eins.
Hvað er að vera sendill eða setjari? Hvernig sendir maður fax?
Sum störf hverfa í áranna rás og ný verða til. Við þróumst með og lærum að taka nýja tækni í þjónustu okkar.
"Mínir draumar, þeir rættust allir"
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Stundum rætast draumarnir og stundum rætast þeir á annan hátt. En allt er þetta reynsla sem hjálpar okkur að taka skrefin áfram.
"Að vera með barnabörnunum og prjóna"
Finna þennan milliveg, leyfa þér eitthvað en ekki bruðla. Litlu hlutirnir skipta meira máli en þeir stóru.
"Allt í einu var framtíðin bara komin"
Tíminn flýgur. Fyrsta sumarstarfið, vinna með skóla og svo leitin að því hvað við ætlum að verða þegar við verðum stór.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er orðinn 70 ára!
Hvað gerist á 70 árum í sögu lífeyrissjóðs?
Í byrjun var sjóðurinn ósköp lítill, aðeins um 200 sjóðfélagar. Aðild að sjóðnum var aðallega í gegnum Verzlunarmannafélag Reykjavíkur – nú VR. Lífeyrissjóðurinn var stofnaður samkvæmt ákvæðum í kjarasamningi VR, aðild var frjáls.
Tvíþætt markmið
Markmiðið var aðallega tvíþætt: Að ávaxta iðgjöld sjóðfélaga og greiða þeim síðan lífeyri í fyllingu tímans og síðan hitt sem kannaski öðru fremur knúði á um stofnun sjóðsins: Að mynda sjóð sem sjóðfélagar gætu leitað til að fjármagna íbúðarhúsnæði sitt. Á þeim tíma var lánafyrirgreiðsla til íbúðakaupa og/eða bygginga afar lítilfjörleg í landinu og því erfitt að koma sér þaki yfir höfuðið, ekki síst fyrir ungar fjölskyldur.
Seinna markmiðið, fjármögnun íbúða sjóðfélaga, var það sem fyrr tókst að hrinda í framkvæmd, strax á fyrsta starfsári sjóðsins þegar fyrstu sjóðfélagalánin voru veitt. Á árinu 2025 afgreiddi sjóðurinn lán að fjárhæð 58,9 milljarðar króna og veitti 1.825 lán.
Síðan, eftir því sem tímar liðu, hófust lífeyrisgreiðslur. Líkt og annað í starfsemi sjóðsins byrjuðu þær í smáum stíl, en hafa farið jafnt og þétt vaxandi alla tíð. Á árinu 2025 greiddi sjóðurinn alls 45,4 milljarða króna í lífeyri til um 29 þúsund sjóðfélaga.
Til farsældar
Síðustu ár og áratugi hefur vegferð Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verið á beinni leið til aukinnar farsældar. sjóðurinn hefur stækkað og styrkst og þjónusta við sjóðfélaga aukist. Þó var ekki einsýnt að svo gæti orðið fyrstu 20 – 30 árin í sögu sjóðsins.
Miklir sviptivindar í efnahagslegu umhverfi þjóðarinnar ollu stöðugum erfiðleikum í starfsemi lífeyrissjóða og höfðu verðbólga og langverandi neikvæðir raunvextir ekki síst neikvæð áhrif á stöðu og afkomu sjóðanna.
Segja má að með þrautsegju og óbilandi trú á framtíðina hafi frumkvöðlunum tekist að sigla þessu litla fleyi gegnum brimskafla hinna efnahagslegu hamfaraveðra sem yfir dundu allt fram á tíunda áratug 20. aldarinnar.
Góð og áreiðanleg þjónusta
Alla tíð hefur Lífeyrissjóður verzlunarmanna búið að því að stjórn og starfsfólk sjóðsins hafa lagt sig fram að rækja sem best þær skyldur sínar að varðveita og ávaxta sjóðinn sem best og veita sjóðfélögum góða og áreiðanlega þjónustu.
Eitt helsta einkenni sjóðsins á þessum miklu tímamótum er hve síungur hann er. Sjóðurinn hefur þróast í takt við tímann og fylgir nýjungum í þjónustu við sjóðfélaga, bregst við nýjum öryggiskröfurm í rekstri lífeyrissjóða af afli, hikar ekki við að ryðja brautina inn á ný svið eins og erlendar fjárfestingar (sem dreifa áhættu mun meira en hægt er innanlands) og hefur sýnt forystu um mótun umhverfisvitundar í fjárfestingum svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd.
Á þessum tímamótum er fróðlegt að skoða nokkrar tölur um þróun í starfsemi sjóðsins undanfarin ár og áratugi, ítarlegri upplýsingar er að finna í ársskýrslum hér á vefnum.
Úr 200 sjóðfélögum í 200.000
Í byrjun voru sjóðfélagar 200, nú eru þeir tæplega þúsundfalt fleiri eða 192 þúsund í byrjun ársins. Fyrsti sjóðfélaginn náði ellilífeyrisaldri 1967 og tveir aðrir bættust við það ár, alls þrír! Í lok árs 2025 voru lífeyrisþegar 27.666 talsins.
Á sjö áratugum hefur sjóðurinn vaxið með sjóðfélögum sínum og orðið einn stærsti langtímafjárfestir landsins. Fyrir 10 árum var Lífeyrissjóður verzlunarmanna um 580 milljarðar króna að stærð. Í lok árs 2025 var sjóðurinn um 1.566 milljarðar króna að stærð.
Saga sjóðsins er þó ekki aðeins saga um vöxt í stærð og eignum, heldur um traust samband við sjóðfélaga í gegnum ólík æviskeið. Frá fyrstu barnalífeyrisgreiðslum árið 1958 og fyrstu ellilífeyrisgreiðslum árið 1967 til dagsins í dag þá hefur markmiðið verið hið sama: að vera traustur bakhjarl og stöðugur stuðningur við sjóðfélaga öllum stundum, alla ævi.