Nokkur mikilvæg atriði ef þú ert að að skipta um vinnu:
- Gerðu nýjan samning um séreignarsparnað á Mínum síðum því hann flyst ekki á milli launagreiðenda.
- Láttu launagreiðanda vita að þú viljir greiða í Lífeyrissjóð verzlunarmanna nema þér beri skylda til að greiða í annan sjóð samkvæmt samningi.
- Ef þú ert orðin(n) 45 ára gæti verið skynsamlegt að skoða tilgreinda séreign.
- Kannaðu hvort þú getur samið um viðbótarframlag frá launagreiðanda í séreign. Það getur hentað launagreiðendum að gera vel við starfsmenn með þessum hætti þar sem engin launatengd gjöld fylgja greiðslunni (sjá dæmi neðar á síðu).
- Ef samningur um skiptingu réttinda á milli hjóna er virkur og þú ferð að greiða í annan lífeyrissjóð þarftu að láta nýja lífeyrissjóðinn vita af samningnum.
Viðbótarframlag launagreiðanda í séreign
Stundum getur verið auðveldara að sækja hlunnindi sem ekki skapa annan kostnað eins og þegar um launahækkun er að ræða. Viðbótarframlag launagreiðanda í séreignarsparnað er ein leið til þess.
Samkvæmt lögum getur launagreiðandi greitt allt að tveimur milljónum króna aukalega á ári í séreignarsparnað fyrir þig til viðbótar við 12% heildarmótframlag án þess að það sé talið þér til tekna. Þetta getur verið gott fyrir þá sem eiga lítinn séreignarsparnað eða einfaldlega vilja auka sinn sparnað.
- Lögbundið lágmarksmótframlag launagreiðanda 11,5%
- Mótframlag launagreiðanda vegna séreignarsparnaðar er 2%
- Samtals 13,5% mótframlag
Hver prósenta skiptir máli yfir árafjölda
Þitt framlag
0 kr.
Sparnaður á mánuði
0 kr.
Útborguð laun lækka um
0 kr.
Heildarinneign
0 kr.
Þar af ávöxtun
0 kr.
Á mánuði í 10 ár
0 kr.
Dæmi um útreikning á viðbótarframlagi
- Launagreiðandi má greiða að hámarki 12% af launum auk tveggja milljóna.
- Þar sem launagreiðandi er að greiða 13,5%, þ.e.1,5% hærra en kemur fram í lögum, þarf að draga 1,5% frá þessum tveimur milljónum til að fá út hvað viðbótarframlagið getur verið.
- Launþegi er með 600 þúsund krónur í laun á mánuði, 600.000 * 1,5% = 9 þús, * 12 mánuði, samtals kr. 108.000 á ári sem er umfram 12%.
- 2.000.000 – 108.000 = 1.892.000.
Svigrúmið fyrir aukið mótframlag í séreign frá launagreiðanda er 1.892.000 kr. án þess að greiða af því skatt.
Hafðu í huga að ef þú færð greiðslur frá TR þá skerðir aukinn séreignarsparnaður, þ.e. séreignarsparnaður umfram 6% sem þú eignaðist frá og með 1.janúar 2023, lífeyrisgreiðslur frá TR.