Góð langtímaávöxtun
Öryggi og áfallavernd
Allt að 9,5% í séreign
Hagstæð lán
Lágur rekstrarkostnaður
Ráðgjöf og góð stafræn þjónusta
Við erum stolt af því að vinna í þágu 186 þúsund sjóðfélaga sem njóta góðs af góðum árangri. Sjóðurinn er eign sjóðfélaga og allur árangur hans skilar sér til þeirra.
Ævilangur lífeyrir
Þú tryggir þér ævilangan lífeyri, verðtryggðar greiðslur sem endast ævina á enda sama hvað þú lifir lengi.
Öryggi
Áfallavernd fyrir þig og þína ef á reynir vegna veikinda eða fráfalls, sem er með því besta sem gerist hjá lífeyrissjóðum. Gerðu samanburð því mikill munur getur verið á slíkum réttindum á milli sjóða.
Séreign
Ráðstafaðu allt að 9,5% í séreign: tilgreinda séreign og séreignarsparnað.
Bara halda áfram á sömu braut, halda áfram að fylgja þróun og hlúa áfram að sjóðsfélögum og bera hag þeirra fyrir brjósti eins og hægt er og tala ég hér af reynslu... Takk fyrir mig.
Úr könnun meðal sjóðfélaga
Góður rekstur - stærðin skiptir máli
Rekstrarkostnaður LV er á við hagkvæmustu lífeyrissjóði í alþjóðlegum samanburði eða 0,14% árið 2023. Gerðu samanburð.
Ábyrgar fjárfestingar - fyrir nútíð og framtíð
Við beitum aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga til að styðja við góða langtímaávöxtun.
Mjög ánægð með öll samskipti fyrr og síðar. Mjög ánægð að hafa valið Lífeyrissjóð verzlunarmanna þegar ég réði loksins í hvaða lífeyrissjóð ég greiddi.
Úr könnun meðal sjóðfélaga
Góð stafræn þjónusta og persónuleg ráðgjöf
Við leggjum metnað okkar í að veita góða stafræna þjónustu og úrvals aðgengi að umsóknum, yfirlitum og upplýsingum um stöðu hvers og eins á Mínum síðum. Ráðgjafar okkar veita persónulega ráðgjöf og upplýsingar. Hafðu samband eða bókaðu tíma hjá ráðgjafa.