Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Stjórnarhættir og stjórnun

Í kaflanum er fjallað m.a. um stjórnarhættir, stefnumótun, skipurit, stjórn og yfirstjórn.

Starfsemin markast m.a. af hlutverki sjóðsins við að byggja upp víðtæk lífeyrisréttindi, lífeyrissparnað í séreign og sem vörsluaðila stórra eignasafna sem byggjast á langtímasýn. 

Hlítni

LV leggur áherslu á að fylgja eftir reglum og viðurkenndum viðmiðum varðandi 
stjórnarhætti. Liður í því er skilvirkt skipurit, liðsheild, viðeigandi innri reglur, innra eftirlit og aðhald frá innri og ytri endurskoðun og hagaðilum. Eftirfylgni felst m.a. í aukinni áherslu á upplýsingagjöf sem birtist í skýrslu stjórnar, árs- og sjálfbærniskýrslu og með viðvarandi upplýsingagjöf sjóðsins. Þá framkvæmir stjórn reglulega mat á starfsháttum sínum.

Langtímastefnumótun

Til að styðja við hlutverk sjóðsins, langtímasýn og uppbyggilega fyrirtækjamenningu hefur LV markað sér stefnu til 2030. Í þessum kafla er gerð grein fyrir mikilvægum þáttum stefnunnar sem lúta að framtíðarsýn, leiðarljósum í starfseminni og skilgreindum grunngildum.

Skipurit

Í kafla þessum er gerð grein fyrir skipuriti sjóðsins sem hefur það markmið að styðja við skilvirkan rekstur og viðskiptalíkan hans. Til viðbótar hafa aðildarsamtök LV, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og VR mikilvægt hlutverk í stjórnskipulagi sjóðsins sem og fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands og fjármála og efnahagsráðuneytið sem veitir sjóðnum starfsleyfi og staðfestir samþykktarbreytingar.  Sama er að segja með önnur eftirlitsstjórnvöld eins og Persónuvernd og Samkeppniseftirlitið.

Stjórn og yfirstjórn

LV leggur áherslu á breidd í samsetningu stjórnar og stjórnenda. Í þessum kafla er að finna yfirlit yfir stjórnendur, framkvæmdastjóra og forstöðumenn auk upplýsinga um menntun þeirra, störf og reynslu. 

Yfirlit yfir nokkur verkefni frá síðustu árs- og sjálfbærniskýrslu

Á árinu 2025 og það sem af er ári 2026 hefur m.a. verið unnið að eftirfarandi verkefnum
sem varða stjórnarhætti sjóðsins: 

Stefna um hagnýtingu gervigreindar

Stefna um hagnýtingu gervigreindar var samþykkt af stjórn í desember 2025. Tilgangur stefnunnar er að setja ramma um siðferðilega, tæknilega og lagalega notkun gervigreindar í starfseminni.

Markmið hennar er að styðja við hagnýtingu gervigreindar á öruggan, ábyrgan og markvissan hátt til að bæta ákvörðunartöku, þjónustu við sjóðfélaga, sjálfvirknivæða ferla og efla nýsköpun. 

Aðferðafræði sjálfbærni og ábyrgra fjárfestinga við umsýslu eignasafna

Á árinu var framkvæmd ítarleg greining á hvort ætti með markvissum hætti að tengja stýringu eignasafna sjóðsins með beinum hætti við Parísarsáttmálann og/eða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Niðurstaðan var að setja ekki markmið tengd heimsmarkmiðunum en rýna frekar mögulega markmiðssetningu þegar kemur að kolefnislosun. Ráðgert er að niðurstaða þar um liggi fyrir á árinu 2026.

Siða- og samskiptareglur

Siða- og samskiptareglur sjóðsins voru uppfærðar í upphafi árs. Þeim er ætlað að styðja við gott viðskiptasiðferði, faglega starfsemi, daga úr líkum á hagsmunaárekstrum og styðja við góða framkvæmd með tilliti til umboðsskyldu lífeyrissjóðsins.

Yfirlit yfir nokkur verkefni sem eru á döfinni

Eftirfarandi verkefni eru á meðal þeirra verkefna er varða stjórnarhætti og rekstur næstu misseri:

Stefnumótun

Árið 2021 vann stjórn ásamt stjórnendum að stefnumótun sjóðsins til ársins 2030. Í þeirri vinnu var mörkuð framtíðarsýn og leiðarljós í takt við fyrirliggjandi gildi sjóðsins. Eins og vikið er að í skýrslu stjórnar með ársreikningi og í umfjöllun í kafla VII um sjálfbærni í starfsemi sjóðsins er gert ráð fyrir því að yfirfara áhersluatriði í stefnumótuninni á árinu 2026, m.a. í ljósi stefnumörkunar varðandi áherslur á sjálfbærniþætti í eignasöfnum LV, framkvæmd stefnu um ábyrgar fjárfestingar og hluthafastefnu sem og beitingu aðferðafræði sjálfbærni í annarri starfsemi sjóðsins.

Varnir gegn mútum og spillingu

Á árinu 2026 er ráðgert að setja reglur um varnir gegn mútum og spillingu í samræmi við viðurkennd viðmið.

Tvöföld mikilvægisgreining

Í árslok 2025 hófst vinna við gerð tvöfaldrar mikilvægisgreiningar fyrir starfsemi sjóðsins í þeim tilgangi að byggja betri grunn fyrir forgangsröðun mikilvægra verkefna í rekstri sjóðsins. Vinnu við greininguna er ekki lokið. Ráðgert er að kynna niðurstöður greiningarinnar á árinu 2026.

Öryggi upplýsinga- og fjarskiptakerfa

Unnið er að innleiðingu margþættra aðgerða til að auka öryggi upplýsingatæknikerfa sjóðsins. Sú vinna byggist meðal annars á innleiðingu reglna svonefndrar DORA-reglugerðar ESB inn í starfsemi sjóðsins. Reglugerðin fjallar um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann. Ráðgert er að innleiðing verði langt komin í lok árs 2026.

Almenn þróun

Áfram verður haldið á þeirri vegferð að þróa stjórnarhætti sjóðsins í takt við þróun laga, viðurkenndra viðmiða og áherslna stjórnar og stjórnenda.

Til viðbótar við umfjöllun í þessum kafla er vísað til annarra kafla í árs- og sjálfbærniskýrslunni, m.a. til umfjöllunar um viðskiptalíkan LV í kafla I um starfsemi LV, umfjöllunar um aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga í kafla IV um ábyrgar fjárfestingar, kafla V um áhættustýringu og kafla VII um sjálfbærni í starfsemi sjóðsins. 

Um hlutverk, sýn, vegferð og gildi LV

LV vinnur eftir stefnumótun stjórnar til ársins 2030. Áherslur stefnumótunarinnar og afrakstur einstakra verkefna birtist víða í rekstri sjóðsins og umfjöllun í þessari skýrslu. Meðal þess má nefna:

  • Aukna áherslu á upplýsingagjöf til sjóðfélaga.
  • Aukna áherslu á langtímasýn við stýringu eignasafna.
  • Markvissa innleiðingu laga og annarra reglna um ábyrgar fjárfestingar.
  • Rekstur mannauðsstefnu sem styður við starfsemi sjóðsins og eflir góðan vinnustað.
  • Viðvarandi verkefni til að tryggja gagnaöryggi.
  • Samþætting sjálfbærni í allri starfsemi sjóðsins, þ.e. rekstri, lífeyri og eignasöfnum.

Til að styðja við þessar og fleiri áherslur í rekstri og stefnu LV hefur sjóðurinn útlistað nánar hlutverk, framtíðarsýn, leiðarljós og grunngildi sjóðsins: 

Hlutverk

Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri eftir þeim reglum sem hér fara á eftir. Stjórn sjóðsins mótar fjárfestingarstefnu hans og sér um ráðstöfun á fjármagni hans. Hún ávaxtar það með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma, að teknu tilliti til áhættu og með hliðsjón af langtímaskuldbindingum sjóðsins.

Framtíðarsýn til 2030

Framtíðarsýn LV er að sjóðurinn sé eftirsóknarverður og leiðandi lífeyrissjóður. Sjóðurinn byggir upp trausta fjárhagslega framtíð sjóðfélaga við starfslok og tryggingar vegna örorku og við fráfall sjóðfélaga. Lífeyrissjóðurinn veitir traustar og áreiðanlegar upplýsingar sem miðast við þarfir sjóðfélaga á hverjum tíma. Hann ávaxtar fjármuni sjóðfélaga með gagnsæjum og ábyrgum hætti með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Hann er fyrirmyndarvinnustaður skipaður öflugri liðsheild sem býr yfir góðri þekkingu, reynslu og hæfni.

Leiðarljós

Stefna LV til 2030 skiptist í fimm leiðarljós sem koma úr framtíðarsýn sjóðsins. Þessi fimm leiðarljós eða þemu ramma inn áherslur í daglegri starfsemi og eru leiðbeinandi fyrirv ákvörðunartöku þannig að unnið sé markvisst í anda framtíðarsýnar lífeyrissjóðsins.

Fimm leiðarljós eða þemu stefnunnar umbreytast í verkefni og áherslur sem markvisst er unnið að í daglegum störfum sjóðsins. Það er gert í gegnum vel skilgreind verkefni sem eiga augljósan og rekjanlegan uppruna í sýn á framtíðarstöðu sjóðsins árið 2030.

Fram undan eru nokkur ár til að uppfylla og raungera sýnina í gegnum ákvörðunartöku á grundvelli stefnunnar og forgangsröðun verkefna.

Leiðarljós

Framúrskarandi teymi

Öflug og kvik liðsheild í hvetjandi umhverfi þar sem lögð er áhersla á skipulagða úrlausn viðfangsefna með samvinnu og góðum samskiptum.

Snjöll þjónusta og traustar afurðir

Geta og hæfni til greiningar og túlkunar á gögnum sjóðfélaga leiðir til aukins ávinnings fyrir sjóðfélaga með auknum skilningi og innsýn.

Þjónandi forysta

LV er til fyrir sjóðfélagana og starfsemin miðar að framtíðinni með djúpum skilningi á fortíð, samtíð og framtíð.

Sjálfbær starfsemi

Hjá LV grundvallast ákvarðanir á forsendum sjálfbærrar þróunar sem endurspeglast í allri starfsemi og skipulagi sjóðsins.

Ábyrgar fjárfestingar

Ákvarðanir um fjárfestingar til ávöxtunar á lífeyriseign sjóðfélaga mótast af sjálfbærri framvindu samfélags, efnahags og umhverfis.

Grunngildin [e. Values]

Stefnumótun LV og framtíðarsýn er byggð á og styður við grunngildi sjóðsins:

Grunngildin

Ábyrgð

Fagmennska, áræði og samviskusemi. Áhersla á vandaða áhættustýringu, eftirfylgni
með fyrirtækjum sem fjárfest er í og áherslu á góða stjórnarhætti. Til grundvallar liggja vönduð vinnubrögð, hæft starfsfólk og skýr skilaboð frá stjórn um ábyrg vinnubrögð.

Umhyggja

Umhyggja með áherslu á heilindi og ráðvendni. Áhersla á frumkvæði í þjónustu og gott viðmót.
Áhersla á að virkja og hvetja starfsfólk í starfi og að vera þátttakendur í stefnumótun og markmiðssetningu sjóðsins.

Árangur

Keppa að settum markmiðum og skila góðu starfi við stjórnun og í öðrum störfum fyrir sjóðinn. Þessi markmið birtast m.a. í áherslum á skilvirkni, arðsemi, stöðugleika í rekstri, starfsánægju, opna stjórnarhætti og vilja til að veita sjóðfélögum á öllum aldri góða þjónustu. Eftirfylgni felst í raunhæfri markmiðssetningu og hvatningu til starfsmanna.

Skipurit

Skipurit
Skipurit
Stjórn Stjórnendur Fulltrúaráð Endurskoðunarnefnd

Markmiðið með skipuritinu er að styðja við skilvirkan rekstur og viðskiptalíkan sjóðsins. Skipuritið tekur einnig mið af ákvæðum laga um starfsemi sjóðsins, samþykktum hans og ákvæðum kjarasamnings aðildarfélaga hans, Félags atvinnurekenda, Samtaka atvinnulífsins og VR.

Stjórn er skipuð átta stjórnarmönnum tilnefndum af aðildarfélögum sjóðsins og kjörnum af fulltrúum viðkomandi aðildarfélaga í fulltrúaráði. 

Aðildarfélögin skipa jafnframt 50 manna fulltrúaráð sem fundar tvisvar á ári með stjórnendum LV. Fulltrúaráðið fer með atkvæði á ársfundi og greiðir atkvæði um starfskjarastefnu, skipan fulltrúa nefndar um laun stjórnarmanna, tillögur um stjórnarlaun, tillögu stjórnar að endurskoðanda og tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. Endurskoðunarnefnd er undirnefnd stjórnar, skipuð tveimur stjórnarmönnum og einum utanaðkomandi aðila.

Á skrifstofu sjóðsins eru jafnframt starfræktar fjórar nefndir/fastir starfshópar:

  • Lánanefnd (sjóðfélagalán), í umsjón rekstrarsviðs.
  • Áhættunefnd, í umsjón áhættustýringarsviðs.
  • Nefnd um ábyrgar fjárfestingar, í umsjón eignastýringarsviðs.
  • Fjárfestingarráð eignastýringarsviðs.

Ráðgjöf varðandi samþættingu sjálfbærni í starfsemi LV varðandi rekstur, lífeyrisafurðir og eignasöfn er á lögfræðisviði.

Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur

Á live.is, er aðgengilegt yfirlit yfir helstu stefnur og reglur LV sem varða þætti í starfsemi sjóðsins og lúta að stjórnarháttum hans og starfsemi almennt. 

Reglur og stefnur

Nánar um stjórnarhætti LV, hlutverk hans og regluverk stjórnkerfis sjóðsins

Ítarlega er fjallað um hlutverk LV, stjórnarhætti og einstaka þætti stjórnkerfis sjóðsins, reglur LV og lagareglur í árlegri stjórnarháttayfirlýsingu sjóðsins sem birt er í viðauka við skýrslu þessa sem fylgir kafla VII um sjálfbærni í starfsemi LV.