Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Stjórn

Reynslumikil og samhent stjórn sem samanstendur af fjórum konum og fjórum körlum með fjölbreyttan bakgrunn. 

Stjórn sjóðsins er skipuð átta mönnum. Fjórir eru tilnefndir af VR, þrír af af Samtökum atvinnulífsins og einn af Félagi atvinnurekenda. Hvert framangreindra aðildarsamtaka sjóðsins tilnefnir einn stjórnarmann til vara. VR tilnefnir stjórnarmenn til fjögurra ára í senn en tilnefningartími stjórnarmanna sem tilnefndir eru af Samtökum Atvinnulífsins og Félagi atvinnurekenda er tvö ár. Sjá nánar í samþykktum sjóðsins.

Stjórnin ber ábyrgð á starfsemi sjóðsins í samræmi við ákvæði laga og samþykkta sjóðsins. Meðal þess sem stjórnin fjallar um á fundum sínum eru breytingar á samþykktum, mótun fjárfestinga- og hluthafastefnu, fjárhagsáætlanir, lánareglur og kynningarmál.

Stjórn sjóðsins skipa

Jon Olafur Halldorsson Jon Olafur Halldorsson

Jón Ólafur Halldórsson

Formaður stjórnar

Jón Ólafur er tilnefndur af SA og tók sæti í stjórn í júní 2020. Hann er formaður stjórnar Samtaka atvinnulífsins auk annarra stjórnar- og ráðgjafarstarfa. Jón starfaði hjá Olís í 27 ár, þar af sem forstjóri í 7 ár.

Jón Ólafur er með B.Sc. í véltæknifræði frá KTH Kaupmannahöfn, MBA með áherslu á fjármál fyrirtækja og MS í stjórnun og stefnumörkun í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og AMP diploma frá IESE í Barcelona.

Stefán Sveinbjörnsson Stefán Sveinbjörnsson

Stefán Sveinbjörnsson

Varaformaður stjórnar

Stefán er tilnefndur af VR og tók sæti í stjórn í ágúst 2019. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri VR frá árinu 2013 og verið í endurskoðunarnefnd sjóðsins frá árinu 2014 að frátöldum árunum 2019-2021. Stefán starfaði áður en hann kom til VR sem rekstrarstjóri Háskólans á Bifröst og var áður forstöðumaður fyrirtækjasviðs Sparisjóðs Mýrasýslu.

Stefán er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík, BSc í viðskiptalögfræði, BSc í viðskiptafræði, diplóma í rekstrarfræðum, próf í verðbréfamiðlun og sveinspróf í rafvirkjun.

Arnargudmundsson Arnargudmundsson

Arnar Guðmundsson

stjórnarmaður

Arnar er tilnefndur af VR og tók sæti í stjórn í mars 2026. Arnar starfar sem viðskiptastjóri erlendra fjárfestinga hjá Íslandsstofu.  Hann hefur starfað lengi við atvinnuþróun hjá aðilum á borð við Aflvaka Reykjavíkur, Útflutningsráð og Fjárfestingastofu.  Arnar hefur einnig starfað sem aðstoðarmaður ráðherra iðnaðar- og nýsköpunar og fjármála- og efnahagsmála auk þess sem hann starfaði sem upplýsingafulltrúi Alþýðusambands Íslands.

Arnar er með MA gráðu í menningarfræði frá Birmingham háskóla í Englandi og BA gráðu í fjölmiðla- og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands.

Placeholder Placeholder

Drífa Snædal

stjórnarmaður

Drífa er tilnefnd af VR og tók sæti í stjórn í mars 2026. Drífa er talskona Stígamóta og hefur gegnt þeirri stöðu frá 2023. Áður var hún forseti ASÍ frá 2018-2022 og starfaði sem framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands í sex ár á undan því.

Drífa er með BS próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í vinnumarkaðsfræðum með áherslu á vinnurétt frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Þá er hún einnig viðurkenndur bókari. 

Guðmunda Portrett Guðmunda Portrett

Guðmunda Ólafsdóttir

stjórnarmaður

Guðmunda er tilnefnd af VR og tók sæti sem aðalmaður í mars 2024. Hún starfar sem  framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness og hefur víðtæka reynslu af rekstri í verslun og þjónustu á Íslandi og í Noregi auk þess að starfa við bókhald og innheimtu.

Guðmunda hefur lokið MBA prófi frá Háskóla Íslands. 

Guðrún Ragna Garðarsdóttir Guðrún Ragna Garðarsdóttir

Guðrún Ragna Garðarsdóttir

stjórnarmaður

Guðrún er tilnefnd af FA og tók sæti sem aðalmaður í stjórn í mars 2022. Hún er framkvæmdastjóri Atlantsolíu og hefur stýrt því fyrirtæki frá 2008. Áður starfaði hún við fjármálastjórn í sama fyrirtæki og hjá heildverslun.

Guðrún hefur setið í stjórn FA síðan 2019 og verið formaður félagsins frá 2021. Hún er menntaður viðskiptafræðingur með cand. oecon frá HÍ auk þess að hafa lokið meistaraprófi frá EADA, Barcelona í alþjóðafjármálum og MBA frá HÍ.

Pall Asgrimsson Pall Asgrimsson

Páll Ásgrímsson

stjórnarmaður

Páll Ásgrímsson er tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins og tók sæti í stjórn í mars 2025. Páll er aðallögfræðingur Sýnar hf. og situr í framkvæmdastjórn félagsins. Áður var Páll einn eigenda lögmannsstofunnar Juris, forstöðumaður og framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Símans (síðar Skipta) auk þess að búa að reynslu frá EFTA og ESA í Brussel, verið yfirlögfræðingur hjá Samkeppnisstofnun og lögfræðingur viðskipta- og iðnaðarráðuneytis. Þá hefur Páll setið stjórnum ýmissa fyrirtækja, t.d. Símans hf., Mílu ehf., FARICE hf., Skjásins ehf., Já hf. og Byr hf.

Páll er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í Evrópurétti frá London School of Economics, ásamt því að vera með málflutningsréttindi.

Sigrun Helgadottir Sigrun Helgadottir

Sigrún Helgadóttir

Stjórnarmaður

Sigrún er tilnefnd af SA og tók sæti í stjórn í september 2021. Hún er framkvæmdastjóri Norðuráls á Grundartanga. Sigrún hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr fjármálageiranum en áður en hún hóf störf hjá Norðuráli starfaði hún m.a. hjá Kaupþingi, Kauphöllinni í Osló og Verðbréfaþingi Íslands, nú Nasdaq Ísland.

Sigrún er með cand. oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Norwegian School of Management (BI).