Upplýsingar varðandi netárás á Wise, þjónustuaðila Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hefur verið upplýstur um netárás á fyrirtækið Wise sem átti sér stað 21. desember 2024 af alþjóðlegum netglæpahópi.
24. jan. 2025
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hefur verið upplýstur um netárás á fyrirtækið Wise sem átti sér stað 21. desember 2024 af alþjóðlegum netglæpahópi.
24. jan. 2025
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hefur verið upplýstur um netárás á fyrirtækið Wise sem átti sér stað 21. desember 2024 af alþjóðlegum netglæpahópi. Árásin fólst í afritun af gagnagrunnum Wise. LV gerir ríkar kröfur til þjónustuaðila sinna. Wise hefur hlotið alþjóðlega öryggisvottun.
Wise hýsir hluta af bókhaldsgögnum LV. Samkvæmt upplýsingum frá Wise var öryggisáætlun fyrirtækisins virkjuð um leið og árásin uppgötvaðist, m.a. með aðstoð sérfræðinga frá netöryggisfyrirtækinu Syndis. LV hefur, í samræmi við lög, tilkynnt öryggisbrestinn til Persónuverndar og Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (FME).
Það var ekki fyrr en þriðjudaginn 21. janúar 2025 sem LV fékk upplýsingar frá Wise um að líklegt væri að netglæpahópurinn hafi náð að afrita hluta bókhaldsgagna sjóðsins sem ná yfir tímabilið 2019-2023.
LV mun halda áfram að greina öryggisbrestinn og halda haghöfum upplýstum.
Upplýsingar um tilkynningu Wise vegna málsins má sjá hér.