Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Hvernig er staðan þín í hálfleik?

Þegar við erum komin í hálfleik á vinnumarkaði er tilvalið að fara yfir hvernig við sjáum fyrir okkur lífið eftir vinnu. Gríptu boltann og sjáðu hvar þú stendur.

brosandi radgjafi brosandi radgjafi

Það er kannski ekki nauðsynlegt að fylgjast með lífeyrisréttindunum sínum alla daga en það getur skipt mjög miklu máli að taka stöðuna öðru hvoru og endurskoða markmið og valkosti. Við skorum því á sjóðfélaga að nýta tímamótin þegar fólk hefur lokið um hálfri starfsævinni, í kringum 50 ára aldur, að taka stöðuna í hálfleik. Í því skyni höfum við sett saman það helsta sem við teljum að gagnist fólk við að taka stöðuna. 

Hér eru nokkur dæmi um það sem við viljum benda þér á að skoða nánar. Það er ekki nóg að horfa á tekjuhliðina eingöngu heldur líka útgjaldahliðina sem skiptir jafnmiklu máli, ekki síst húsnæðismálin.   

  • Hvenær langar þig að hætta að vinna?
  • Hvernig verða útgjöld þín?
  • Verður þú skuldlaus?
  • Hver verður staða mín ef maki fellur frá?
  •  Ertu ekki örugglega að greiða í séreignarsparnað?
  • Stefnir þú að því að minnka við þig húsnæði?
  • Ertu á leigumarkaði? 
  • Eru þú og maki þinn með samsvarandi áætlanir?
  • Gæti skipting réttinda hentað ykkur?

 

Taktu stöðuna í hálfleik Lífeyrisáætlun á Mínum síðum
Bóka tíma hjá ráðgjafa