Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Hlé á veitingu lána með breytilegum vöxtum

Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur gert hlé um óákveðinn tíma á móttöku umsókna sjóðfélagalána með breytilegum vöxtum, hvort sem um er að ræða mánaðarlegar breytingar eða með vaxtabreytingarheimild eftir 36 eða 60 mánuði.  

LV Radgjof Og Merki A Vegg LV Radgjof Og Merki A Vegg

Ákvörðunin er tekin í framhaldi dóms Hæstaréttar nr. 55/2024, þar sem sjóðurinn þarf svigrúm til að meta möguleg áhrif dómsins á vaxtaákvæði í skuldabréfum sjóðfélagalána með breytilegum vöxtum. Þá kunna niðurstöður annarra tengdra mála sem eru rekin fyrir dómstólum að hafa áhrif. Í ákvörðun sjóðsins felst engin afstaða til mögulegra áhrifa.  

Umsóknir sem þegar hafa borist sjóðnum verða afgreiddar

Umsóknir um sjóðfélagalán sem bárust fyrir birtingu tilkynningar þessarar verða afgreiddar í samræmi við þær reglur sem giltu þegar umsóknirnar bárust.  

Lán með föstum verðtryggðum vöxtum í boði 

Sjóðfélögum bjóðast verðtryggð lán með 4,6% föstum vöxtum með lánstíma frá 5 til 25 ára. Lánstími til fyrstu kaupenda er allt að 40 ár. 

Nánari upplýsingar 

Nánari upplýsingar verða birtar á vef sjóðsins.  Velkomið er að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins í síma 580 4000 eða senda fyrirspurn.