Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Gott ár að baki hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna

  • Góð ávöxtun skilaði 103 milljörðum
  • Lífeyrisgreiðslur námu yfir 45 milljörðum, jukust um 5 milljarða milli ára
  • Heildareignir í árslok 2025 voru 1.566 milljarðar
  • Nafnávöxtun sameignardeildar var 7,0% sem samsvarar 3,2% raunávöxtun
eignastyring skjar eignastyring skjar

Árið 2025 gekk vel hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Eignir sjóðsins jukust um 108 milljarða króna og námu 1.566 milljörðum í árslok. Þar af er ávöxtun eignasafna 103 milljarðar. Nafnávöxtun sameignardeildar árið 2025 var 7,0% sem samsvarar 3,2% raunávöxtun. Til samanburðar nemur 10 ára raunávöxtun 4,0%.

Áframhaldandi vöxtur var í lífeyrisgreiðslum milli ára og greiddi sjóðurinn rúma 45 milljarða í lífeyri til tæplega 29 þúsund sjóðfélaga sem er 5 milljörðum meira en árið áður. Iðgjöld til sjóðsins héldu einnig áfram að aukast og námu tæpum 52 milljörðum króna.

Góð ávöxtun eignasafna  

Fjárfestingarumhverfið var almennt hagstætt árið 2025 sem endurspeglast í góðri ávöxtun allra eignasafna.  Innanlands skiluðu bæði skuldabréf og hlutabréf góðri ávöxtun. Safn sjóðsins í innlendum  hlutabréfum skilaði umtalsvert betri ávöxtun en viðmiðunarvísitalan sem sýnir meðalávöxtun skráðra hlutabréfa á markaði.

Ávöxtun erlendrar hlutabréfaeignar sjóðsins í íslenskum krónum var einnig með ágætum, þó að töluverðar sveiflur hafi verið á mörkuðum innan ársins. Erlend hlutabréfa- og skuldabréfasöfn sjóðsins skiluðu  góðri ávöxtun í sínum gjaldmiðlum, en lækkun bandaríkjadollars gagnvart íslenskri krónu leiddi til lægri ávöxtunar í íslenskum krónum.

Árleg nafnávöxtun séreignaleiða*

 

2025

5 ára

           Ævileið III  8,3%  5,0%
           Ævileið II  8,0% 5,90%
           Ævileið I  8,1% 7,20%
          Verðbréfaleið  6,9%  8,1%

* Hrein ávöxtun á ársgrundvelli, þ.e. að teknu tillti til rekstrarkostnaðar.

Yfir 45 milljarðar greiddir í lífeyri

Lífeyrisgreiðslur héldu áfram að aukast milli ára og námu rúmum 45 milljörðum samanborið við rúma 40 milljarða árið áður. Þar af námu greiðslur úr sameignardeild 43,8 milljörðum og séreignardeild 1,6 milljörðum. 
Sjóðfélögum sem fá greiddan lífeyri fjölgaði milli ára og voru 28.970 samanborið við 27.577 árið áður. Þetta er jákvæð þróun þar sem sjóðfélagar njóta í auknum mæli ávinnings af viðskiptum sínum við lífeyrissjóðinn. 

Stöðugur vöxtur iðgjalda til sjóðsins

Iðgjöld til sjóðsins til öflunar lífeyrisréttinda og lífeyrissparnaðar námu  rúmum 51 milljarði samanborið við 50 milljarða árið áður. Þar af námu iðgjöld til sameignardeildar um  48 milljörðum og til séreignardeilda hart nær 4 milljörðum. 

Áhrif verðbólgu á tryggingafræðilega stöðu sameignadeildar

Tryggingafræðileg staða var -5,4% í lok árs 2025 samanborið við -4,3% árið áður. Ávöxtun eignasafna hafði jákvæð áhrif á tryggingafræðilega stöðu á meðan verðbólga hafði neikvæð áhrif þar sem áunnin  réttindi sjóðfélaga eru verðtryggð. Einnig hafði endurmat á örorku- og endurhæfingarlíkum lítillega áhrif til lækkunar tryggingafræðilegrar stöðu.

Þrátt fyrir neikvæða tryggingafræðilega stöðu hefur hún ekki áhrif á greiddan lífeyri og er vel innan þeirra marka sem lög gera ráð fyrir.

Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum lækkar

Á árinu var haldið áfram í að þróa og fjárfesta í innviðum og endurnýjun grunnkerfa sjóðsins. Á sama tíma fjölgaði lítilsháttar í hópi starfsfólks til að mæta aukinni þjónustu við sjóðfélaga og vaxandi eftirspurn eftir fræðslu og ráðgjöf til sjóðfélaga almennt. Þrátt fyrir aukið umfang í starfsemi sjóðsins lækkaði hlutfallslegur rekstrarkostnaður milli ára og er nú 0,13%. Rekstrarhagræði sjóðsins skilar sér allt til sjóðfélaga. 

Yfirlit starfsemi 2025