Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Bréfin fara í pósthólfið á Ísland.is

Skilvirkni og rekjanleiki rafrænna bréfa hefur marga kosti.

LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 3 0923 LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 3 0923

Markmið okkar hjá sjóðnum er að veita úrvals þjónustu við sjóðfélaga. Í þeim tilgangi höfum við síðan í lok árs 2024 sent ýmis bréf til sjóðfélaga beint inn á pósthólf þeirra á island.is. Þar má nefna bréf til nýrra sjóðfélaga og bréf vegna ævilangs lífeyris og makalífeyris. Nýlega bættust við bréf vegna endurskoðunar vaxta á lánum og fleiri fylgja á næstunni bæði til sjóðfélaga og launagreiðenda. 

Af því tilefni viljum við hvetja alla sjóðfélaga og lántakendur til að hafa skráð netfang á island.is og velja að fá hnipp þegar ný bréf berast. Einnig að hafa skráð netfang á Mínum síðum og fá þá viðeigandi ábendingar og upplýsingar frá sjóðnum öðru hvoru. 

Kostirnir við rafræna afhendingu bréfa eru ótvíræðir. Skilvirkni og rekjanleiki bréfanna er mikill kostur fyrir alla aðila, til dæmis geta ráðgjafar strax séð þau bréf sem send hafa verið til þeirra sem kunna að hafa samband.  

Hverjir eru duglegastir að opna bréf?

Til gamans getum við deilt því að 61% bréfa um lífeyri sem afhent eru á island.is eru opnuð. Lægsta hlutfallið er 57% og það hæsta er 100%.

Aldurshópurinn 56-65 ára duglegastur að opna bréfin en 16-25 ára hafa lægsta hlutfallið, sem er eins og gera má ráð fyrir. 

Hefur þú fengið bréf? Skráðu netfangið á Mínum síðum og á island.is og við látum þig vita þegar þú færð bréf frá okkur.