Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 2026

Ársfundur verður haldinn mánudaginn 23. mars kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík. Streymt verður frá fundinum á Mínum síðum en nánari upplýsingar verða birtar á live.is þegar nær dregur.

20230228 LV Adalfundur Lowres 45 20230228 LV Adalfundur Lowres 45

Streymt verður frá fundinum á Mínum síðum en nánari upplýsingar og dagskrá verður birt á live.is þegar nær dregur.

Dagskrá

  • Venjuleg ársfundarstörf, dagskrárliðir skv. grein 6.6 í samþykktum sjóðsins
  • Samþykktabreytingar
  • Kynning á þáttum í þjónustu sjóðsins
  • Önnur mál

Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins skriflega eigi síðar en viku fyrir ársfund.

Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum og eru hvattir til að mæta á fundinn eða fylgjast með í streymi. Fundargögn verða aðgengileg á live.is fyrir fundinn.


Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna