Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Alla tíð hef ég hlakkað til að fara í vinnuna

Valgarður Sverrisson varð 67 ára í mars sl. og er um það bil að ná 40 ára starfsaldri hjá sjóðnum. Hann er að láta af störfum og hefja „lífið eftir vinnu“ næstu daga. Valgarður hefur haft marga hatta í gegnum árin í störfum sínum hjá sjóðnum og nú þegar hann er að fara á eftirlaun fórum við aðeins yfir ferilinn með honum.

IMG 1203. IMG 1203.

Hvernig kom það til að þú byrjaðir að vinna hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna? 

Ég byrjaði í október 1986 og það kom þannig til að ég sá auglýsingu um starf skrifstofustjóra í Mogganum og sótti um. Var boðaður í viðtal um starfið og þetta gerðist frekar hratt man ég. Ég var tiltölulega nýútskrifaður úr námi í rekstrarhagfræði við McGill háskóla í Montreal í Kanada. Þegar ég hóf störf minnir mig að kannski 10 eða 12 starfsmenn hafi unnið hjá sjóðnum.

Nú hefur þú starfað í mörgum mismunandi störfum hjá sjóðnum, ekki satt?

Jú, ég hef haft marga hatta í gegnum árin. Meðal helstu verkefna hafa verið yfirumsjón með bókhaldi sjóðsins, gerð ársreiknings og ársskýrslna, starfsmannamál, launaútreikningur og frágangur, ritun fundargerða stjórnar og endurskoðunanefndar sjóðsins og ýmiss skýrsluskil til fjármálaeftirlitsins. Á fyrstu árunum hjá sjóðnum sá ég m.a. einnig um lífeyrisúrskurði og miðvinnsluuppgjör vegna verðbréfaviðskipta og skráningu í skuldabréfa- og hlutabréfakerfi sjóðsins.

Hvað stendur svo upp úr á 40 ára starfsferli?  

 

Það sem stendur upp úr er að mér hefur sem betur fer ekki leiðst í vinnunni öll þessi ár, vinnudagurinn var bara búinn áður en maður vissi af. Ég hef hlakkað til að fara í vinnuna og er glaður með að hafa unnið með góðu fólki öll þessi ár. Fyrir mig hefur þetta verið krefjandi, spennandi og skemmtilegt alla tíð.

En breytingarnar yfir starfsævina eru svo margar að erfitt er að nefna eitthvað eitt. En ég get nefnt að það voru t.d. stór tímamót þegar opnað var fyrir erlendar fjárfestingar árið 1994. Þá var heildarlöggjöf um lífeyrissjóði árið 1997 stór breyting. Einnig voru mikil tímamót hjá sjóðnum árið 2006 þegar hann tók upp aldurstengda réttindaávinnslu lífeyrisréttinda. Fjármálahrunið haustið 2008 hafði mikil áhrif og leiddi til margra breytinga hjá sjóðnum og umfangsmeiri reksturs á öllum sviðum. Að lokum má svo ekki gleyma Covid tímabilinu og öllum þeim breytingum sem því fylgdi.  

En nú þegar þú ert að láta af störfum, hvernig hefur þú undirbúið þig undir starfslokin?

Ég er búinn að undirbúa mig vel frá því ég tilkynnti hvenær ég vildi láta af störfum fyrir 18 mánuðum síðan. Nýr eftirmaður minn Brynja Pétursdóttir kom til starfa í ársbyrjun síðasta árs og hef ég aðstoðað hana við að komast vel inní umfangsmikið starfið.

Það er svo frábær stefna hérna hjá sjóðnum að maður geti skalað sig niður og undirbúið sig fyrir starfslokin með því að minnka starfshlutfall. Ég hef þannig getað verið í 80% starfi og sleppt föstudögum undanfarna 12 mánuði.

IMG 2056. IMG 2056.
IMG 2056. IMG 2056.

Valgarður á ferðalagi í Innsbruck í Austurríki 2025

Ég hlakka til að ferðast meira og svo þarf maður að halda sér í góðu líkamlegu formi. Ég held þetta verði í sjálfu sér bara meira af því sama sem við hjónin höfum verið að gera undanfarin ár. Okkur finnst gaman að ferðast og við höfum gert mikið af því undanfarin 10 ár.

Hefur þú einhver góð ráð fyrir aðra sem eru að byrja að huga að starfslokum?

Passa vel uppá heilsuna og nýta vel fyrstu tíu árin á eftirlaunum þegar maður er líklega við góða heilsu t.d. til að geta ferðast. Ég hef gaman af því að skipuleggja ferðalög fyrir okkur hjónin. Næst á dagskrá er þriggja vikna ferð um vesturhluta Bandaríkjanna. Við förum í hringferð sem byrjar í Denver Colorado, keyrum um Rocky Mountains og heimsækjum m.a. nokkra þjóðgarða og Las Vegas.

Svo er að sjálfsögðu mikilvægt að vera í reglubundnu sambandi við fjölskyldumeðlimi, vini og kunningja. Einnig verður fróðlegt að fylgjast með sjóðnum úr fjarlægð. Ég stefni að því að mæta á ársfundi, hitta þar gamla starfsfélaga og fylgjast þannig með framgangi lífeyrissjóðsins. 

Nú eruð þið hjónin mikið ferðafólk og því tilvalið að spyrja hvort það sé einhver uppáhaldsstaður sem hefur heillað?

Það er erfitt að velja því við höfum farið svo víða. En ég get nefnt að við vorum einu sinni viku í Sydney Ástralíu og er hún með fallegri borgum sem við höfum komið til. Þangað væri gaman að koma aftur. 

IMG 8001. IMG 8001.
IMG 8001. IMG 8001.

Magnað landslag í Yosemite þjóðgarðinum í Bandaríkjunum

Um leið og við þökkum Valgarði fyrir einstaklega gott samstarf öll þessi ár sem og ánægjulegar samverustundir innan og utan vinnu þá óskum við þeim hjónum allra heilla og margra góðra ferða að loknu farsælu ævistarfi.