Lífeyrir
Lífeyrissjóður verzlunarmanna starfrækir þrjár réttindadeildir, sameignardeild og tvær séreignardeildir, fyrir almenna séreign og tilgreinda séreign.
Lífeyrisgreiðslur
39
milljarðar
Ævilangur lífeyrir 35,4 ma
Örorkulífeyrir 6,6 ma
Maka- og barnal. 1,8 ma
Séreign 1,6 ma
Iðgjöld
51,9
milljarðar
Sameign 47,9 ma
Séreign 4,0 ma
Sjóðfélagar
49,7
þúsund
Heildarfjöldi 192 þúsund
Fjöldi á lífeyri
29
þúsund
Ævilangur lífeyrir 21.889
Örorkulífeyrir 5.804
Makalífeyrir 2.131
Barnalífeyrir 703
Lífeyrisgreiðslur
Lífeyrisgreiðslur úr sameignardeild námu 43,8 milljörðum króna og hækkuðu um 12,3% frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur eru verðtryggðar og hækka miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar sem hækkaði um 3,7% 2025.
Sjóðfélagar sem fengu greiddan lífeyri voru 30.527 á árinu 2025 og fjölgaði þeim um 5,1% frá fyrra ári. Hér taldir eru þeir sem hafa fengið greitt úr fleiri en einni tegund lífeyris. Lífeyrir sameignardeildar í hlutfalli af iðgjöldum, svokölluð lífeyrisbyrði, nam 92,2% á árinu 2025 en var 83,6% árið áður.
Á árinu 2025 hófu 2.496 sjóðfélagar töku eftirlauna en þeir voru 2.860 árið áður. Þar af voru 744 eða 29,8% sjóðfélaga sem hófu töku lífeyris við 67 ára aldur. Þá hófu 54,2% töku fyrir 67 ára aldur.
Örorkulífeyrir: Fjöldi og fjárhæðir
Þeim sem eru á örorkulífeyri hjá sjóðnum hefur fjölgað um 2,8% milli ára.
Iðgjöld til sameignardeildar
Greidd iðgjöld til sjóðsins hafa aukist undanfarin ár. Hækkun milli áranna 2024 og 2025 var um 3,0%.
Fjöldi greiðandi sjóðfélaga
Fjöldi greiðandi sjóðfélaga hefur verið nokkuð svipaður undanfarin ár.