Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Séreign inn á lán - tekur aftur gildi

Lög um almenna nýtingu séreignarsparnaðar til að greiða inn á húsnæðislán í allt að 10 ár hafa tekið gildi. Nánari upplýsingar og umsókn er á island.is  

LV Esjusyn LV Esjusyn

Frétt uppfærð 14. október

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir hjá Skattinum vegna nýtingar á séreign inn á húsnæðislán.

  • Hægt er að nýta mánaðarlega greiðslur í allt að 10 ár (120 mánuði)

  • Í umsóknarferlinu sést hversu margir mánuðir eru eftir af 10 ára tímabilinu.

Nánari upplýsingar og umsókn má finna á Ísland.is

Ný lög um nýtingu séreignar inn á höfuðstól láns tóku gildi 1. október. 

Þeir sem hafa ekki fullnýtt sína heimild geta því sótt um aftur hjá Skattinum fyrir 1.desember 2026, ef umsókn á að gilda fyrir iðgjöld ársins.

Umsókn verður aðgengileg á þjónustuvef Skattsins í byrjun október. Umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 munu gilda fyrir mánaðarlegar greiðslur allt árið (frá 1. janúar 2026).

Vertu með netfangið þitt skráð á Mínum síðum á live.is og við munum láta þig vita þegar allt liggur fyrir um framkvæmdina. 

Nánari upplýsingar er að finna á vef Skattsins